Nemendafélög
Myndir
24.04.2006 19:03:13 / hnefill

Nesti og nýir skór

Fundur er settur í heilabúi Örlygs Hnefils hins yngri. Mættir eru tíu fingur og tíu tær. Ritari er kjörinn Örlygur Hnefill.

Mál á dagsrká:

1. Hvað skal gera næsta vetur?
2. Skór
3. Glæstur sigur
4. Önnur mál

1. Eins og margir hafa tekið eftir þá lagði ég könnun fyrir lesendur um hvað ég ætti að gera næsta vetur. Hún er nú búin að standa vel á annan mánuð og tímabært að kunngera niðurstöðurnar. Mikill meirihluti, eða 67% aðspurðra vilja að ég fari til Akureyrar en 33% vilja að ég dvelji sunnan heiða næsta vetur. Engu að síður er ég ekki enn fyllilega búinn að gera upp hug minn. Það eru margir þættir sem þarf að kanna áður en endanleg niðurstaða verður ljós. Gríðarlega hátt leiguverð í Reykjavík dregur töluvert úr áhuga mínum á að flytja aftur í borg óttans en á hinn boginn þá hef ég góða og vel launaða vinnu þar sem ég vill alls ekki sleppa. Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum og má búast við að ég fari undir feld áður en langt um líður, eins og Þorgeir Ljósvetningagoði gerði forðum daga.

2. Annars er það helst af mér að frétta að vinstri skórinn minn hefur gefið sig og þarf ég nú að kaupa mér nýtt par. Þeir sem þekkja mig vita að skórnir mínir eru grænir og hljóta því, líkt og ég, að sjá að ástæðan fyrir því að skórinn gaf sig er sú að hann var Vinstri-Grænn.

3. Áðan keppti ég svo í asna við Önnu Dís, formann ÍFL og sigraði hana með yfirburðum, eða nánar til tekið með einu stigi. Ég óska mér til hamingju með það og votta henni um leið mikla samúð því ég get ímyndað mér hversu mikil niðurlæging það hlýtur að vera fyrir formann Íþróttafélags í íþróttaskóla að tapa fyrir grínista eins og mér.

Fleira er ekki fært til bókar. Fundi er slitið.

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 15:34:07 / hnefill

Föstudagurinn langi



Í gær var föstudagurinn langi og því ekki úr vegi að skella sér út á lífið. Ég fór ásamt fríðum flokki á Kofa Tómasar frænda þar sem Margrét Maack sá um að þeyta skífum og fórst henni það mjög vel úr hendi. Meðal þess sem ómaði á þessu frábæra kvöldi voru bönd eins og Spice girls, Hanson, Sivía Nótt og Queen. Greinilega frábær blanda. Ég læt nokkrar myndir fylgja með til gamans.

Núna er ég hinsvegar kominn aftur í vinnuna og verð örugglega þar fram á nótt ef ég þekki sjálfan mig rétt. Ég er einn í húsinu og er að vinna í alveg sérstöku verkefni sem er að setja upp rúmlega 300 blaðsíðna bók. Það er hörkustuð. En ég ætla að halda áfram að vinna. Góðar stundir!

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 12:37:36 / hnefill

Suðurferð

Ég er kominn í páskafrí. Reyndar er þetta ekki mikið páskafrí því ég verð að vinna nánast alla dagana, en það er bara fínt. Eftir miklar tafir lagði ég loksins af stað suður seinnipartinn í gær. Nánar til tekið um átta leytið. Eftir að hafa stoppað í öllum húsum á Laugum til að ná í eitthvað var loksins hægt að leggja af stað. Með í för voru Örlygur Hnefill faðir minn, Gunnar Hnefill bróðir minn, systkinin Kolbjörn Ivan og Sigrún Gyða og loks ég sjálfur. Við brunuðum af stað og bíllinn var smekkfullur því allir voru með svo mikinn farangur.

Þegar við komum í Fnjóskárdalinn tókum við smá útúrdúr og renndum heim að Dæli þar sem Sigríður Árdal á heima. Þetta var frekar erfið stund því ég þurfti að standa frammi fyrir henni og viðurkenna að ég væri sá svikari sem ég er. Mér til halds og trausts hafði ég Kolbjörn og Gunnar með mér en þeir hlógu nú bara að mér þegar ég var að afsaka mig í bak og fyrir. Allavega Sigga; þú færð þennan disk einhvertímann, ég þori ekki að lofa meiru lengur ;) Eftir að hafa þakkað fyrir kaffið brunuðum við svo áfram til Akureyrar. Þegar þangað var komið var klukkan að nálgast níu og þá fattaði ég fyrst að ég hafði ekki borðað neitt allan daginn. Það hafði svosem ekki truflað mig neitt svakalega fyrr en ég sá Leirunesti og þá varð mér þetta ljóst. Á meðan pabbi tók bensín á bílinn þá röltum við hin í sjoppuna til að fá okkur pylsur. En þá var búið að loka inn svo við urðum bara að skella okkur í bílaröðina. Enda hlógu sjoppustelpurnar þvílíkt þegar við mættum þarna á engum bíl. Áður en haldið var frá Akureyri kom ég svo örstutt við hjá Hlyni. Á leiðinni suður ræddum við svo ýmislegt, meðal annars Silvio Berlusconi og aðra glæsilega stjórnmálamenn. Í Hrútafirðinum sofnaði ég svo þannig að frásagnir af ferðum okkar verða ekki lengri, allavega ekki að minni hálfu.

Svo vaknaði ég áðan og þýddi teiknimyndasögurnar fyrir morgundaginn og ætla svo að fara í vinnuna núna klukkan eitt. Það verður gaman að koma þangað aftur, enda er alltaf búið að breyta einhverju þar í hvert skipti sem ég kem suður. Í kvöld ætla ég svo að fara og hitta vini mína hér í borginni. Góðar stundir.

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 18:46:06 / hnefill

Myndir

Það er allt týnt þessa dagana. Hleðslutækið fyrir fartölvuna mína er búið að vera týnt frá því fyrir áramót, hleðslutækið fyrir stafrænu myndavélina mína týndist á Tónkvíslinni og nú síðast týdust lyklarnir mínir. Í gær fann ég hleðslutækið af myndavélinni svo nú vona ég bara að lyklarnir og hitt hleðslutækið fari að skila sér. En í tilefni af því að ég gat farið að mynda aftur þá bjó ég mér til smá myndasíðu og ég ætla að bæta við hana aftur einhvertíman seinna. Ég setti líka inn nokkrar gamlar og góðar. Slóðin er allavega www.picturetrail.com/hnefill

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 03:52:32 / hnefill

Hvort kom á undan?

Margir hafa eytt tíma sínum og orku í hugleiðingar um hvort hafi komið á undan; hænan eða eggið. Þessar vangaveltur eru nú búnar að vera þar sem ég varpa hér fram annari spurningu sem mun umsvifalaust hirða hugsanamarkaðinn og verða mörgum að miklu hugarangri.

Hvort kom á undan; hamstur eða að hamstra?

Svör óskast! Sá sem getur svarað þessu með bestu rökunum (gæði mæld í lengd) fær að gjöf páskaegg númer 4 frá undirrituðum.

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 23:16:21 / hnefill

Bloggleti

Þar sem ég er of latur að blogga hefur ónefndur aðili tekið að sér að blogga fyrir mig og hér kemur það:

Góða kvöldið. Jæja það er orðið opinbert. Örlygur er of latur til að blogga og hefur ráðið mannskap í það mál, svo bloggþyrstir lesendur hans þurfi ekki að bíða of lengi eftir næsta bloggi.

En það á víst að fjalla um 80´s myndatöku og lambahrygg í þessu bloggi.

Örlygur var að græja 80´s myndatöku kvöldið 26. mars 2006 ( þetta blogg á að vera 1000-1500 orð þannig að ég lengi þetta eins og ég get). Ég veit reyndar ekkert meira um þessa myndatöku en þetta mun allt koma í ljós þegar skólablaðið á Laugum, Járnsíða, kemur út!

Hann ÖllZ fékk alveg dýrindiskvöldverð núna í kvöld (26. mars 2006) og var það svona lambahryggur. Þetta hefur vafalaust verið eitt af hvítu lömbunum sem voru jarmandi uppí fjalli núna í haust og vissu ekkert hvað var í gangi þegar þau voru leidd á sláturshúsið á Húsvík !!

En í rauninni þá veit ég ekkert um þessa myndatöku og þennan lambahrygg hans þannig að ég ætla að segja hvað sé framundan hjá honum næstu daga. Á morgun ætlar hann að vakna voðalega snemma eða klukkan 06:30 og tannbursta sig og fá sér eitt epli að borða. Svo ætlar hann úta að hlaupa og hann ætlar að hlaupa 10 km. Næst ætlar hann að fara inn og fá sér eina skál af cheroosi svo ætlar hann í skólann og læra og læra svo hann verði gáfaður. Svo ætlar hann að halda áfram að nördast eitthvað fyrir Nfl.. og svo ætlar hann að fara að sofa klukkan 23:01.

Á Þriðjudag gerist allt það sama.. nema hann ætlar ekki að nördast eitthvað fyrir Nfl, hann ætlar að vesenast í einhverri spurninga keppni fyrir félagsmiðstöð þingeyjarsveitar eða eitthvað álíka skemmtileg og fræðandi. Og afhenda falleg viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í Tónkvísl og líka fyrir góða íslensku mál kunnáttu eða hvað sem það var. Veit ekki, útaf ég er ekki í Laugaskóla ;)

En kæru lesendur ég þakka áheyrn ykkar (eða álestur ? eða eitthvað) og nú skulumvið öll biðja um að hann Örlygur aka. ÖllZ, verði duglegur að blogga á næstunni.

Takk fyrir og góða nótt. (nafn ritara verður ekki gefið upp að svo stöddu).

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 14:29:41 / hnefill

Þátttaka

Orðið þátttaka er sett saman úr orðunum þátt og taka, og þýðir að taka þátt í einhverju.Vegna samsetningar orðsins eru þrjú t í því, sem er dáltið sérstakt. Það sem ég er hins vegar að velta fyrir mér er hvort til séu fleiri orð sem innihalda þrjú t í röð. Sá sem er fyrstur til að benda mér á annað slíkt orð fær veglegt viðurkenningarskjal sem ég mun útbúa. Óheimilt er að nota orðin þátttakandi, þátttakendur, þátttökuskráning eða þátttökuviðurkenning (eða aðrar útfærslur á orðinu þátttaka). Góða skemmtun og góðar stundir.


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 01:14:51 / hnefill

Óvæntir gleðidagar



Örlygur Hnefill, Ragnheiður, Anna Björt, Kolbjörn Ivan og tíkin Týra að loknum óvæntum gleðidegi.

Hver hefur ekki lent í því að dagur sem leit út fyrir að verða ekkert merkilegur varð allt í einu að ævintýri. Ég var svo heppinn að eiga tvo svona daga í vikunni. Á þriðjudaginn átti Kolli 20 ára afmæli og því ákváðum við að skella okkur til Húsavíkur svo kappinn gæti nýtt nýfengin réttindi sín og verslað í ríkinu. Anna Björt og Ragga báðu um far og við lögðum af stað um 4. Ég og Kolli fórum í Ríkið en stelpurnar fóru í Töff föt. Svo þegar þær voru búnar að versla og við um það bil að fara heim aftur, þá datt okkur allt í einu bara í hug að fara út að borða. Við renndum því á Sölku, fengum matseðilinn og pöntuðum okkur allt það dýrasta. Þar sem ég var að fá 173 þúsund kall sem hafði verið rænt af mér til baka þá ákvað ég að splæsa á liðið. Reikningurinn var mjög hár en maturinn var líka góður og mér leið eins og kvikmyndastjörnu þegar ég borgaði hann með bros á vör. Síðan héldum við úr bænum en þar sem okkur lá ekkert á þá ákváðum við að skreppa í heimsókn til ömmu Önnu Bjartar. Hún sýndi okkur gamlar myndir og sagði okkur sögur og ræddi við okkur um stjórnmálin. Síðan skruppum við í sumarbústað fjölskyldu minnar og stelpurnar voru að missa sig yfir því hvað hann væri töff, og það þótti mér gaman. Síðan ræddum við mikið um skólablaðið og svo héldum við heim. Á Laugum var okkur svo boðið í afmælisköku heima hjá Kolla.

Í gær var ég svo staddur á NFL skrifstofunni með Kolla þegar Svenni kom og spurði hvort ég væri til í að skutla honum yfir á Fosshól. Ég var til í það og bjóst nú ekki við að vera lengi í burtu. Þegar við vorum svo á leiðinni til baka og vorum að koma niður af Fljótsheiðinniu mættum við Narfa, Sigga, Bryndísi, Örnu Benný og Önnu Dís. Þau voru að rölta frá Laugum yfir á Fosshól og þar sem ég var einmitt að fara í hina áttina og var líka nýkominn frá Fosshól sjálfur, þá ákvað ég að láta strákana taka bílinn og rölta með þeim. Þetta var ágætis ganga og tók ekki nema rúma 2 tíma. Þegar við vorum komin í Fosshól ákváðum við strákarnir að rölta upp í Bárðardal til Vídda og hjálpa honum við mjaltir. Kolli kom á bílnum mínum yfir heiðina og stelpurnar fóru heim á honum en við röltum áfram. Eftir mjaltir skutlaði Víddi okkur svo heim í Laugar.

Tveir frábærir dagar sem munu seint gleymast.

Og svo mæli ég með frábæru lagi til að hlusta á:
Weezer - Butterfly

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 01:27:01 / hnefill

Fyrstir koma, fyrstir fá...

Jæja, aldrei þessu vant er ekkert merkilegt að gerast í lífi mínu og því hef ég ákveðið að nota tíman til að  finna mér kærustu. Fyrstir koma, fyrstir fá...

Annars er það af mér að frétta að síðustu vikur hafa verið undirlagðar af undirbúningi fyrir Tónkvíslina sem við héldum í Íþróttahöllinni á Laugum á mánudaginn síðasta. Það var allt lagt í að gera þessa keppni sem stærsta og ég held að það hafi tekist nokkuð vel. Það mættu allavega vel yfir 500 manns á staðinn þannig að eitthvað hefur hin brjálaða markaðssetning okkar skilað sér. Svo kynntist maður fólki út um allt og nýtti auðvitað hvert einasta tækifæri til að auglýsa skólann sinn.

Um daginn var ég svo myndatökumaður í Kastljósinu á RÚV og fékk að heyra að ég hefði staðið mig mjög vel. Þetta kom mjög óvænt upp en var mjög gaman. Best þótti mér samt þegar kreditlistinn kom í lokin á Kastjósinu og þar stóð Örlygur Hnefill Jónsson myndatökumaður, en það er einmitt pabbi minn.

Í gær fóru ég, Ella, Svenni og Kolli til Akureyrar og ég fór á spending spree. Ég keypti mér allt sem ég sá, en það er mjög sjaldgjæft því vanalega er ég mikill sparigrís. Svo var ég í dag með námskeið í Litlulaugaskóla þar sem 7-10 bekkur var að læra að búa til fréttatíma.

Svo förum við núna fljótlega á fullt með skólablaðið Járnsíðu sem kemur út í vor og verður sérstaklega flott í tilefni af 80 ára afmæli Laugaskóla. Góðar stundir.

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 00:29:11 / hnefill

Af strákapörum Örlygs - fyrsti hluti

Góðir hálsar. Ég held að það sé kominn tími á eitt gott blogg hérna, enda er DV málið löngu komið af dagskrá, búið að skipta um ritstjóra og sáralítið breytt. Síðan síðast er ég búinn að halda að mestu til á Laugum. Ég, Jóhann Gunnar og Ingólfur erum búnir að sinna ýmsum verkefnum upp á síðkastið, tókum að okkur að gera kynningarmynd fyrir Laugaskóla og höfum svo verið að ferðast milli grunnskóla til að veiða krakka í skólann. Það er líka eina vitið, enda frábær skóli.

Í gær var svo grunnskólamótið á Laugum með tilheyrandi skólakynningum. Við erum bara eins og gangandi auglýsingaskilti. Það var mjög góð mæting á mótið, eitthvað um 200 manns, og mikið líf á staðnum. Ísafold var með 6 tíma útsendingu, en það er hægara sagt en gert að finna hressandi efni í sex tíma. Það var því á köflum frekar þunnur þrettándi hjá okkur. Engu að síður kom margt á skjáinn. Ég held ég hafi tekið viðtöl við eitthvað um 20 manns í gær, auk þess sem nokkrir komu í settið. Ég var aðallega í því að taka viðtöl í íþróttahúsinu og hafði Kolbjörn og Gunnar Bó með mér þar. Í stjórnstöðinni voru svo Narfi og Jói sem sáu um að bulla út í eitt og Ingólfur og Hlynur stjórnuðu öllum helstu tökkum.

Í kvöld var svo þorrablót Reykdælinga. Það var frábær skemmtun og þá sérstaklega skemmtiatriðin sjálf. Ég var ættleiddur af Pálmholtsfjölskyldunni þar sem mín familía var ekki á svæðinu.

Svo er hér að lokum smá pæling. Ég er að útskrifast í vor og veit ekki alveg hvað ég á að gera. Eins og staðan er í dag þá er tvennt í myndinni: Annarsvegar að flytja til Reykjavíkur og vinna áfram hjá Fréttablaðinu og fara í Sagnfræði í HÍ eða að flytja til Akureyrar og læra Fjölmiðlafræði í Háskólanum á Akureyri. Ég ætla að athuga hvor kosturinn ykkur þykir betri og því er komin hér glæný könnun.

Jæja, ég er farinn að dansa. Góðar stundir!


Ég að taka viðtal við Sigríði Árdal, sigurvegara og eina þátttakanda í SMS leik Ísafoldar.

» 18 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 13:27:07 / hnefill

Daglegur Viðbjóður

Ein pæling varðandi málefni DV. Við vitum ekki hvort sá maður sem hefur verið í umræðu síðustu daga var sekur eða saklaus og um það snýst þetta mál í mínum huga ekki. Málið snýst um það að í landinu er ákveðið réttarkerfi og það á að sjá um að dæma í þessu máli en ekki DV. Ef einhver ásakar Jónas Kristjánsson ristjóra um eitthvað misjafnt, mun hann veita sjálfum sér sömu meðferð og öðrum sem þeir hafa slátrað á síðum blaðsins, eftir heimildum sem eru svo oft byggðar á engu? Það sjá allir að heimildir DV eru nú ekki þær áreiðanlegustu og raunar ótrúlegt að fjölmiðill skuli t.d. nýta sér nafnlaus ummæli á spjallsíðum sem heimildir. Ef ég skrifa eitthvað á netið um Jónas Kristjánsson, má ég þá búast við því á síðum blaðsins? Hann sagði allavega að þeir gerðu ekki mannamun þegar hann var spurður að því í Kastljósinu.

Kannski er lausnin bara sú að leggja niður réttarkerfið og láta DV menn alfarið sjá um dóma og mannorðsmorð. Ég er ekki alfarið á móti DV. Oft koma þeir með góð mál og þarfar ábendingar. Hinsvegar ganga þeir allt of oft út fyrir öll eðlileg mörk.


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 21:50:02 / hnefill

Jólin 2005

Jæja, þá er jólafríið mitt að enda. Í fyrramálið þarf ég að keyra aftur til Reykjavíkur til að byrja að vinna. En hvað um það, ég náð tvem frábærum dögum fyrir norðan. Á þorláksmessukvöld keyrðum við Emilía norður eftir vinnu. Með í för var stúlka frá Reykjavík sem var að fara í Kelduhverfi til að vera hjá afa sínum og ömmu um jólin. Hún heitir Saadia og var hin besta skemmtun að hafa hana með. Á leiðinni komst ég að því að við áttum ýmislegt sameiginlegt og grunar mig að hún sé jafnvel skrítnari en ég :) Verst að ég hafði ekki vit á að raka mig og vera snyrtilegur áður en við fórum af stað. Margt var gert til að stytta stundir við aksturinn, m.a. vorum við virk í að senda hvert öðru kveðjur á Útvarpi Kántríbæ. Við vorum komin norður um klukkan 2 um nóttina og þá reyndi Saadia að múta mér með 2000 krónum fyrir aksturinn en ég harðneitaði og úr varð hið mesta stríð. Þegar ég kom heim voru allir ennþá vakandi og fórum við Gunnar Hnefill að horfa á vídjó. Þegar ég vaknaði á aðfangadag lá margt fyrir. Að venju fórum við niður á Húsavík og heimsóttum forfeður okkar í kirkjugarðinum. Einnig heimsóttum við Klemens afa Garps Hnefils og ég heimsótti Gest í leiðinni. Um kvöldið var hefðbundið jólastand, frábær matur, pakkar og möndlubúðingur. Þetta voru sannkölluð bókajól hjá mér því ég fékk 6 bækur. Í dag komu svo góðir gestir, Joe Gunn frændi minn og allt hans fólk. Jæja, ég ætla að fara að segja þetta gott. Ætli það sé ekki best að enda þetta á að óska öllum gleðilegra jóla. Hó hó hó. Góðar stundir.

» 9 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 21:37:44 / hnefill

Góð sala á plötunni minni :)


Að sjálfsögðu er þetta fölsuð frétt, enda ekki miklar líkur á því að ég verði poppstjarna. Ég vona að enginn móðgist.

» 115 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Lífsdagar �?rlygs
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733849 dögum
Dagar �?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733849 dögum